Bernard og Jökull fóru fyrir ÍR-ingum í öruggum sigri í toppbaráttuslag
Sævar Jónasson

Toppbaráttuslagur ÍR og Gróttu fór fram í Grill 66 deild karla í kvöld og var leikið í Skógarselinu.

Fyrir leik voru bæði lið taplaus á toppi deildarinnar.

Í fyrri hálfleik var leikurinn nokkuð jafn. ÍR-ingar voru þó alltaf einu skrefi á undan seinni part fyrri hálfleiks og náðu mest 4 marka forskoti. Gengu þeir inn til búningsherbergja með 4 marka forskot og var staðan 16-12 í hálfleik.

Í seinni hálfleik voru ÍR-ingar fljótir að stinga gestina af Seltjarnarnesinu af og voru komnir 8 mörkum yfir eftir rúmar 10 mínútur í seinni hálfleik. Þeir slökuðu ekkert á klónni og Gróttu menn voru aldrei líklegir til að minnka muninn. Þegar 10 mínútur voru eftir var munurinn orðinn 10 mörk.

Lokatölur urðu svo 35-26 fyrir heimamenn í ÍR. ÍR því komnir með 10 stig og tróna einir á toppnum taplausir.

Hjá Gróttu voru Ásgeir Bryde og Sæþór Atlason markahæstir með 5 mörk. Hannes Pétur og Þórður Magnús vörðu samtals 15 skot.

Hjá ÍR var Bernard Darkoh og Jökull Blöndal markahæstir. Bernand með 12 og Jökull með 8. Andri Snær og Gísli vörðu samtals 13 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top