Það var með ótrúlegum hætti sem danska úrvalsdeildarliðið Mors-Thy tryggði sér sæti í undanúrslitum dönsku bikarkeppninnar í gærkvöldi. Anton Houe skoraði stórkostlegt sigurmark á lokasekúndu leiksins gegn Skanderborg AGF og tryggði Mors-Thy dramatískan 33–32 útisigur. Staðan var jöfn, 32–32, þegar Mors-Thy fékk síðustu sókn leiksins. Þegar aðeins örfáar sekúndur voru eftir fann Frederik Bak samherja sinn Anton Houe með glæsilegri sendingu inn á línuna. Houe kastaði sér á eftir boltanum í loftinu og skoraði með stórkostlegu sirkusmarki þegar aðeins ein sekúnda var eftir af leiktímanum. Fögnuður leikmanna Mors-Thy var gríðarlegur enda hafði liðið verið undir stóran hluta síðari hálfleiks. Skanderborg AGF, sem varð í öðru sæti dönsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð, var þremur mörkum yfir, 30–27, þegar níu mínútur voru eftir. Mors-Thy skoraði hins vegar fjögur mörk í röð og sneri leiknum sér í vil áður en heimamenn jöfnuðu í 32–32 þegar 35 sekúndur lifðu leiks. Sigurmarkið var jafnframt afar eftirminnilegt fyrir hinn unga Anton Houe, sem fékk hné í höfuðið í kjölfar þess að hann skoraði. „Þetta er án nokkurs vafa besta mark ferilsins. Ég sá ekki einu sinni hvort boltinn fór inn. Það varð allt svart hjá mér og ég fékk hné í höfuðið. En ég er svo ótrúlega léttur. Djöfull er þetta yndislegt,“ sagði Houe í samtali við danska TV 2 Sport eftir leikinn. Houe skoraði fimm mörk í leiknum en Oliver Wosniak var markahæstur Mors-Thy með átta mörk. Hjá Skanderborg AGF voru Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og Jeppe Cieslak markahæstir með sjö mörk hvor. Með sigrinum tryggði Mors-Thy sér sæti í Final4-úrslitahelgi dönsku bikarkeppninnar í þriðja sinn í sögu félagsins. Úrslitahelgin fer fram 20.–21. febrúar á næsta ári. Mors-Thy eru í riðli með Val í Evrópudeildinni en Valur hafði betur í viðureign liðanna í fyrri umferð riðlakeppninnar. Hið ótrúlega sigurmark Mors-Thy má sjá í myndskeiðinu hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.