Lilja enn án sigurs

Lilja Ágústsdóttir og liðsfélagar hennar í BSV Sachsen Zwickau þurfa enn að bíða eftir fyrsta sigrinum í þýsku Bundesligunni eftir svekkjandi eins marks tap gegn Sport-Union Neckarsulm á heimavelli í gær, 25–26.

Lilja skoraði þrjú mörk fyrir Zwickau sem hefur því ekki enn tekist að vinna leik í fyrstu átta umferðum deildarinnar. Liðið hafði gert 27–27 jafntefli gegn HC Leipzig í síðustu umferð og vonaðist til að fylgja þeim úrslitum eftir með sínum fyrsta sigri á tímabilinu.

Gengi Zwickau hefur verið erfitt það sem af er vetri en liðið hefur þó verið nálægt því að landa sigri í nokkrum leikjum. Zwickau tapaði meðal annars 28–29 gegn Göppingen fyrr á tímabilinu og hefur nú beðið lægri hlut með minnsta mun í tveimur leikjum.

Lilja, sem leikur sem vinstri hornamaður, hefur komið við sögu í öllum átta deildarleikjum Zwickau á tímabilinu og skorað samtals tólf mörk. Zwickau situr því áfram án sigurs í næst neðsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með tvö stig.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top