Dika Mem meiddist gegn Ogga – Óvissa um meiðslin
IHF

Áhyggjur eru hjá spænska stórliðinu Barcelona eftir að franska stórstjarnan Dika Mem þurfti að yfirgefa völlinn vegna meiðsla í 34–18 sigri liðsins gegn Caserío Ciudad Real í spænsku úrvalsdeildinni á þriðjudagskvöldið.

Mem, sem er einn mikilvægasti leikmaður Barcelona og franska landsliðsins, varð fyrir höggi á vinstri höndina í viðureign við Nacho Plaza, línumann Ciudad Real. Höggið kom á einn fingur vinstri handar, sem er skothönd Frakkans, og reyndust óþægindin það mikil að hann gat ekki haldið leik áfram.

Frakkinn yfirgaf því völlinn og kom ekkert meira við sögu í leiknum. Þrátt fyrir það átti Barcelona ekki í vandræðum með að tryggja sér öruggan sigur en óvissan um meiðsli Mem skyggði á úrslitin.

Enn liggur ekki fyrir hversu alvarleg meiðslin eru. Félagið hefur ekkert gefið út um meiðslin eða áætlað hvenær leikmaðurinn geti snúið aftur. Frekari læknisskoðanir eiga að leiða í ljós hvort um sé að ræða minniháttar högg eða meiðsli sem gætu haldið honum frá keppni um einhvern tíma.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top