HØJ sagt í viðræðum við leikmann Magdeburg
JOHAN NILSSON /AFP

Danska félagið HØJ Elite er sagt eiga í viðræðum um að fá sænska landsliðsmanninn Albin Lagergren til liðs við sig. Þetta kemur fram á samfélagsmiðla síðunni, Rygtebørs.

Lagergren, sem er 34 ára gömul hægri skytta, er samningsbundinn þýska stórliðinu Magdeburg til ársins 2028. Ekki kemur fram hvenær hugsanleg félagaskipti gætu orðið að veruleika.

Svíinn er afar reynslumikill og á að baki 143 A-landsleiki og 447 mörk fyrir sænska landsliðið. Hann varð Evrópumeistari með Svíum árið 2022 og vann Meistaradeild Evrópu með Magdeburg árið 2025.

Fari svo að Lagergren gangi til liðs við HØJ yrði það mikill liðsstyrkur fyrir danska félagið. Enn er þó um orðróm að ræða og engin félagaskipti hafa verið staðfest í fréttinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top