Íslenski landsliðsmaðurinn Orri Freyr Þorkelsson átti stórleik þegar Sporting vann sannfærandi 41-27 sigur á Marítimo í portúgölsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Orri Freyr var markahæsti leikmaður vallarins með tíu mörk í leiknum. Sporting var með mikla yfirburði frá fyrstu mínútu og náði fljótlega góðu forskoti. Staðan var orðin 18-7 um miðjan fyrri hálfleik eftir sex mörk Sporting í röð og ljóst í hvað stefndi. Í hálfleik var Sporting komið með tíu marka forskot, 24-14, og héldu lærisveinar Ricardo Costa áfram að bæta við forskotið í síðari hálfleik. Mest náði Sporting 19 marka forskoti þegar staðan var 39-20 en Marítimo náði að laga stöðuna undir lokin. Lokatölur urðu 41-27 og öruggur fjórtán marka sigur Sporting staðreynd. Orri Freyr var í aðalhlutverki í sóknarleik Sporting og skoraði tíu mörk, flest allra leikmanna. Sporting gat leyft sér að hvíla nokkra af lykilmönnum sínum stóran hluta leiksins, þar á meðal bræðurna Francisco og Martim Costa. Þetta var fyrsti deildarleikur Sporting eftir 34-32 tap gegn Porto í byrjun nóvember en með því tapi lauk langri sigurgöngu félagsins í portúgölsku deildinni. Með sigrinum komst Sporting aftur á topp portúgölsku úrvalsdeildarinnar með 31 stig, einu stigi meira en Porto sem á þó leik til góða. Leikurinn fór fram í João Rocha-höllinni í Lissabon þrátt fyrir að Marítimo væri skráð heimalið. Upphaflega átti leikurinn að fara fram á Madeira í byrjun október en honum var frestað vegna ferðavandræða Marítimo eftir Evrópuleik liðsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.