Mikil umræða skapaðist á Facebook-síðu Handkastsins, Handkastið – Þjóðaríþróttin, í kjölfar sigurs FH gegn Val í Olís-deild karla í gærkvöldi. Þar var meðal annars rætt um frammistöðu markvarðanna Jóns Þórarins Þorsteinssonar og Björgvins Páls Gústavssonar og ákvörðun Snorra Steins Guðjónssonar, landsliðsþjálfara Íslands, að gefa Jón Þórarni ekki tækifæri í síðasta landsliðsverkefni. Jón Þórarinn átti góðan leik í marki FH gegn Val í gærkvöldi og lauk leiknum með 38% markvörslu á meðan Björgvin Páll, markvörður Vals og íslenska landsliðsins, var með 22% markvörslu. Frammistaða markvarðanna vakti athygli, ekki síst í ljósi umræðu sem hefur verið í Handkastinu að undanförnu um markvarðaval íslenska landsliðsins. Jón Þórarinn var valinn í landsliðshóp Íslands fyrir leikina gegn Úkraínu og Eistlandi í undankeppni EM 2028 en var utan leikmannahóps í báðum leikjunum. Snorri Steinn valdi þess í stað þá Viktor Gísla Hallgrímsson og Björgvin Pál Gústavsson í leikmannahópinn í báðum viðureignunum. Í Handkastinu í gærkvöldi, sem og í síðustu þáttum, hefur þessi ákvörðun verið til umræðu og meðal annars verið farið yfir tölfræði markvarðanna á tímabilinu. Þegar tölfræði markvarða í Olís-deild karla er skoðuð kemur í ljós að Jón Þórarinn hefur varið flest skot allra markvarða deildarinnar eftir fyrstu tíu umferðirnar. Jón Þórarinn hefur varið 133 skot í tíu leikjum með FH og er með 33% markvörslu. Björgvin Páll hefur hins vegar varið 102 skot í tíu leikjum með Val og er með 29,9% markvörslu. Munurinn á þeim er því 31 varið skot og 3,1 prósentustig í markvörslu, Jóni Þórarni í vil. Athygli vekur einnig að Jón Þórarinn er með þriðju bestu markvörsluprósentu þeirra sex markvarða sem hafa varið flest skot í deildinni. Ágúst Elí Björgvinsson, markvörður KA, er með bestu markvörsluprósentuna í þessum hópi, 33,6%, en hann hefur varið 124 skot í níu leikjum. Í umræðunni í Handkastinu fór Stymmi klippari einnig yfir frammistöðu markvarðanna í Evrópudeildinni þar sem bæði FH og Val hafa verið í eldlínunni á tímabilinu. Þar snýst dæmið hins vegar við því Björgvin Páll er með betri markvörsluprósentu en Jón Þórarinn í Evrópukeppninni. Þar vegur þó þungt stórleikur Björgvins Páls gegn danska liðinu Mors-Thy þar sem hann varði 44% þeirra skota sem hann fékk á sig. Þótt tölfræði úr Olís-deildinni sýni að Jón Þórarinn hafi staðið sig betur en Björgvin Páll það sem af er tímabili, bæði hvað varðar fjölda varinna skota og markvörsluprósentu, er ljóst að frammistaða þeirra í Evrópudeildinni gefur aðra mynd. Val Snorra Steins á markvörðum landsliðsins hefur því vakið töluverðar umræður, sérstaklega í ljósi þess að Jón Þórarinn hefur verið einn af bestu markvörðum Olís-deildarinnar á tímabilinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.