Handknattleikssamband Íslands hefur ráðið Þóri Hergeirsson í starf afreksstjóra sambandsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sambandinu. ,,Þetta eru stór og ánægjuleg tíðindi fyrir HSÍ og íslenskan handbolta. Við fögnum ráðningunni einstaklega mikið og teljum að reynsla, þekking og fagleg sýn Þóris verði mikil lyftistöng fyrir íslenskan handbolta og íþróttastarf á Íslandi almennt," segir í tilkynningunni frá HSÍ þar sem segir enn fremur: ,,Þórir þarf vart að kynna fyrir íslensku íþróttafólki. Hann er einn sigursælasti landsliðsþjálfari handboltasögunnar og hefur áratugum saman starfað í fremstu röð alþjóðlegs handbolta." Þórir stýrði norska kvennalandsliðinu frá 2009 til 2024, en hafði áður verið aðstoðarþjálfari liðsins frá árinu 2001. Hann var því í þjálfarateymi norska kvennalandsliðsins frá 2001-2024. Á þeim tíma varð Noregur meðal annars tvívegis Ólympíumeistari, þrívegis heimsmeistari og sex sinnum Evrópumeistari. Þá vann liðið til fjölda annarra verðlauna á stórmótum og skipaði sér í fremstu röð heims í áraraðir. ,,Það er mikill fengur fyrir HSÍ að fá einstakling með þessa reynslu og þekkingu til að leiða afreksstarf sambandsins. Við sjáum mikil tækifæri í því að nýta þekkingu Þóris til að efla umgjörð, fagmennsku og þróun afreksstarfsins, allt frá yngri landsliðum upp í A-landslið karla og kvenna, í samvinnu við íþróttastjóra HSÍ. Við hlökkum mikið til samstarfsins, að læra af Þóri, nýta reynslu hans og þekkingu og vinna saman að því að efla íslenskan handbolta," segir í tilkynningunni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.