Tvær þýskar landsliðsstjörnur orðaðar við stór félagaskipti
UWE ANSPACH / AFP

Mikil markvarðarúlletta gæti verið í uppsiglingu í þýsku Bundesligunni en landsliðsmarkverðirnir Andreas Wolff og David Späth eru báðir orðaðir við félagaskipti. Wolff er sagður vera ofarlega á óskalista VfL Gummersbach en Späth gæti tekið við af honum hjá THW Kiel.

Þýskir fjölmiðlar hafa undanfarna daga fjallað um mögulega brottför Wolff frá Kiel, þrátt fyrir að hinn 35 ára gamli markvörður sé samningsbundinn félaginu til sumarsins 2028. Samkvæmt upplýsingum Bild er Gummersbach talið líklegasti áfangastaður hans, jafnvel strax næsta sumar.

Gummersbach hefur verið á mikilli uppleið undanfarin ár og stefnir á að festa sig í sessi meðal bestu félagsliða Þýskalands. Christoph Schindler, framkvæmdastjóri félagsins, hefur ekki viljað útiloka áhuga á Wolff og sagði nýverið að hann myndi ekki sinna starfi sínu nægilega vel ef hann skoðaði ekki möguleikann á að fá markvörð í þessum gæðaflokki.

Fari svo að Wolff yfirgefi Kiel gæti félagið leitað til David Späth, 24 ára landsliðsmarkvarðar Rhein-Neckar Löwen. Späth er samningsbundinn Löwen til ársins 2029 en hefur einnig verið orðaður við önnur stórlið. Þeir Wolff og Späth mynda markvarðapar þýska landsliðsins undir stjórn Alfreðs Gíslasonar.

Forráðamenn Kiel hafa hins vegar reynt að draga úr vangaveltunum. Viktor Szilágyi, framkvæmdastjóri félagsins, hefur bent á að Wolff sé með gildan samning og sagst gera ráð fyrir að hann verði hjá félaginu að minnsta kosti til ársins 2028.

Þá hefur Bob Hanning, framkvæmdastjóri Füchse Berlin, útilokað að félagið sé að svo stöddu að vinna að því að fá Wolff til sín. Berlínarliðið hafði einnig verið nefnt sem mögulegur áfangastaður markvarðarins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top