Þjálfari Álaborgar fokreiður eftir annað tap liðsins á heimavelli
HENNING BAGGER / Ritzau Scanpix via AFP)

Henrik Kronborg, aðstoðarþjálfari danska stórliðsins Álaborgar, var allt annað en sáttur eftir óvænt 27-29 tap liðsins gegn Kristjáni Erni Kristjánssyni og félögum í Skanderborg AGF í dönsku úrvalsdeildinni í gær. Kronborg gagnrýndi frammistöðu sinna manna harðlega og sagði liðið hafa brugðist í nánast öllum þáttum leiksins.

Það vekur sérstaka athygli að þetta var annað heimatap Álaborgar í dönsku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Álaborg hafði ekki tapað heimaleik í dönsku úrvalsdeildinni frá 10. júní 2023 áður en Fredericia heimsótti liðið í september. Nú hefur liðið hins vegar tapað tveimur heimaleikjum á rúmum tveimur mánuðum.

Álaborg, sem er ríkjandi meistari í Danmörku átti afar slakan fyrri hálfleik og skoraði aðeins átta mörk á fyrstu 30 mínútunum. Skanderborg AGF leiddi 14-8 í leikhléi og þrátt fyrir betri frammistöðu heimamanna í síðari hálfleik tókst Álaborg ekki að snúa leiknum sér í hag. Kronborg var augljóslega svekktur þegar hann ræddi við TV 2 Nord eftir leikinn.

„Ég held að við séum öll gríðarlega vonsvikin með okkar eigin frammistöðu. Það á við um okkur öll sem lið. Við erum ótrúlega vonsvikin með það sem við sýndum,“ sagði Kronborg sem viðurkenndi að Skanderborg AGF hefði einfaldlega verið betra liðið.

„Ég verð að viðurkenna að Skanderborg var betra liðið í dag. En ég er mjög, mjög vonsvikinn með okkur öll. Að við skulum ekki geta sýnt meiri kraft í okkar leik en við gerðum í dag.“

Álaborg reyndi að snúa leiknum við með því að spila sjö á sex í sókninni í síðari hálfleik. Það skilaði liðinu aftur inn í leikinn en gestirnir héldu út og tryggðu sér óvæntan sigur.

Tobias Nielsen leikmaður Álaborgar tók undir gagnrýni þjálfarans og sagði fyrri hálfleikinn hafa verið langt undir þeim kröfum sem gerðar eru til liðsins. „Við klúðruðum allt of mörgum góðum færum og náðum ekki að koma sóknarleiknum almennilega í gang. Þetta var einfaldlega slæmur leikur,“ sagði Nielsen.

Álaborg fær ekki mikinn tíma til að velta sér upp úr tapinu því á miðvikudaginn tekur liðið á móti Füchse Berlin í Meistaradeild Evrópu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top