Drammen með mikilvægan sigur í Noregi
Kristianstad

Tvö Íslendingalið voru í eldlínunni í Noregi og Svíþjóð en Drammen vann mikilvægan sigur í neðri hlutanum á meðan Kristianstad halda áfram að misstíga sig í sænsku deildinni.

Kristianstad hóf tímabilið af látum og vann fyrstu fjóra leiki sína í deildinni en eftir það fór að halla undan fæti hjá liðinu og í dag tapaði liðið sínum þriðja leik af seinustu fimm og er liðið komið niður í áttunda sæti deildarinnar. Lokatölurnar í dag urðu 32-28 fyrir heimamenn í Skövde. Einar Bragi Aðalsteinsson átti erfitt uppdráttar í dag en hann skoraði tvö mörk úr átta skotum og gaf tvær stoðsendingar, Baldur Fritz Bjarnason fimm mörk úr níu skotum en þar af voru þrjú úr vítum. Ólafur Guðmundsson var einnig í leikmannahópi liðsins en kom ekki við sögu. Besti maður vallarins var hinn 19 ára gamli Fidel Mbumba í liði heimamanna en hann skoraði sjö mörk úr níu skotum.

Í Noregi unnu Drammen nauðsynlegan fjögurra stiga leik ef svo má segja gegn Bergsøy, 31-22 en fyrir leik munaði aðeins tveimur stigum á liðunum. Ísak Steinsson átti flotta innkomu í markið í dag en hann varði sjö skot af þeim fjórtán sem hann fékk á sig eða 50% markvarsla. Drammen eru í tólfta sæti deildarinnar en eru núna þremur stigum frá topp átta sem gefa sæti í úrslitakeppnina.

Úrslit dagsins:

Skövde 32-28 Kristianstad

Drammen 31-22 Bergsøy

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top