Reynir skoraði níu – Sigvaldi tapaði gegn Gummersbach
Swen Pförtner /AFP

Reynir Þór Stefánsson skoraði níu mörk fyrir MT Melsungen í 31–31 jafntefli gegn Bietigheim í þýsku Bundesligunni í dag. Þá fögnuðu Guðjón Valur Sigurðsson og lærisveinar hans í Gummersbach 33–29 sigri á Hannover-Burgdorf í Íslendingaslag.

Melsungen þurfti að hafa fyrir stiginu gegn nýliðunum sem leiddu 16–15 í hálfleik. Bietigheim hélt áfram að stríða heimamönnum í síðari hálfleik og komst meðal annars þremur mörkum yfir, 27–24. Reynir Þór fór fyrir sóknarleik Melsungen og var markahæstur heimamanna með níu mörk.

Það var hins vegar Aaron Mensing sem bjargaði stigi fyrir Melsungen með jöfnunarmarki þegar 35 sekúndur voru eftir. Fleiri urðu mörkin ekki og fyrsta stigatap Melsungen á heimavelli í deildinni á tímabilinu staðreynd.

Í Gummersbach var einnig jafnræði með liðunum framan af og staðan í hálfleik var 18–18. Heimamenn voru sterkari í síðari hálfleik og tryggðu sér fjögurra marka sigur, 33–29. Þetta var fjórði sigur Gummersbach í röð í deildinni.

Teitur Örn Einarsson var atkvæðamestur íslensku leikmannanna hjá Gummersbach með fimm mörk. Elliði Snær Viðarsson skoraði tvö og Garðar Ingi Sindrason eitt. Hjá Hannover-Burgdorf skoraði Sigvaldi Björn Guðjónsson þrjú mörk.

Gummersbach er komið með 16 stig eftir tólf leiki en Hannover-Burgdorf er áfram með tólf stig.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top