Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði tíu mörk þegar Sävehof vann Bensheim/Auerbach 34–30 í síðari leik liðanna í einvígi um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í dag. Hún var markahæst á vellinum og skoraði samtals nítján mörk í viðureignunum tveimur. Jafnt var í hálfleik, 16–16, en Sävehof hafði betur eftir hlé og vann samanlagt 67–56. Sænska liðið er því komið í riðlakeppnina. Lovísa Thompson og liðsfélagar hennar í Benfica tryggðu sér einnig sæti í riðlakeppninni, í fyrsta sinn í sögu kvennaliðs félagsins. Benfica vann Kynzvart, 41–30, eftir 44–29 sigur í fyrri leiknum og fór því áfram með samanlagðri markatölu 85–59. Lovísa skoraði eitt mark. Báðir leikirnir fóru fram í Lissabon þótt Benfica væri skráð gestalið í síðari viðureigninni. Larvik, lið Dönu Bjargar Guðmundsdóttur, komst sömuleiðis áfram eftir 31–24 heimasigur á Saint-Amand. Fyrri leiknum lauk með jafntefli, 25–25, og norska liðið vann því samanlagt 56–49.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.