FH-ingar misstu frá sér fjögurra marka forskot gegn Marítimo
Egill Bjarni Friðjónsson

FH mátti sætta sig við þriggja marka tap gegn portúgalska liðinu Marítimo da Madeira í Evrópudeild karla í handknattleik í Kaplakrika í kvöld. Leiknum lauk með 36-39 sigri gestanna eftir að FH hafði verið með fjögurra marka forskot í hálfleik, 22-18.

FH-ingar byrjuðu leikinn af krafti og voru með yfirhöndina í fyrri hálfleik. Sóknarleikur Hafnfirðinga gekk vel og skoruðu þeir 22 mörk á fyrstu 30 mínútunum. Heimamenn fóru því með fjögurra marka forskot inn í hálfleikinn, 22-18.

Gestirnir frá Portúgal sneru hins vegar taflinu við í síðari hálfleik. Marítimo skoraði 21 mark gegn 14 mörkum FH á síðustu 30 mínútunum og tryggði sér að lokum þriggja marka sigur, 39-36.

Símon Michael Guðjónsson var markahæstur í liði FH með tíu mörk. Jón Bjarni Ólafsson, Eiður Rafn Valsson og Brynjar Narfi Arndal komu næstir með fimm mörk hver.

Hjá gestunum var Délcio Moreno de Pina markahæstur með níu mörk og Ruben Santos skoraði átta mörk. Jose Luciano Costa da Silva, Diogo Borges da Silva og Ezequiel Esteban Kelm skoruðu sex mörk hver.

Markaskorarar FH: Símon Michael Guðjónsson 10, Jón Bjarni Ólafsson 5, Eiður Rafn Valsson 5, Brynjar Narfi Arndal 5, Ágúst Guðmundsson 3, Ómar Darri Sigurgeirsson 3, Antoine Óskar Pantano 2, Einar Rafn Eiðsson 2 og Gunnar Kári Bragason 1.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top