Þórir Hergeirsson, nýráðinn afreksstjóri Handknattleikssambands Íslands telur að íslenskur kvennahandbolti þurfi að sýna meiri metnað þegar kemur að því að koma ungum og efnilegum leikmönnum í atvinnumennsku erlendis. Þetta kemur fram í ítarlegu viðtali við Þóri sem birtist á RÚV í morgun en þar ræðir hann meðal annars framtíð íslenska kvennalandsliðsins og hvað þurfi að gera til að Ísland geti skipað sér í hóp tíu bestu handboltaþjóða heims. Þórir, sem gerði norska kvennalandsliðið að margföldum heims-, Evrópu- og Ólympíumeisturum, telur að hugarfarsbreyting þurfi að eiga sér stað innan íslensks kvennahandbolta. Hann bendir á að hjá ungum strákum sé það eðlilegur hluti af umræðunni að stefna á atvinnumennsku erlendis en ekki sé alltaf sama hugarfar til staðar hjá stelpunum. „Ég held að við þurfum að hækka rána og tala af meiri metnaði um þetta,“ segir Þórir í samtali við RÚV. Hann vill að ungum handboltakonum verði fyrr gert ljóst að þær geti stefnt á atvinnumennsku og náð langt í íþróttinni. Þórir segir að nú séu átta til níu íslenskar landsliðskonur í atvinnumennsku erlendis en að sá fjöldi þurfi að aukast á næstu árum. Hann telur að íslenska landsliðið geti ekki tekið næsta stóra skrefið nema fleiri leikmenn fái tækifæri til að æfa og keppa við bestu handboltakonur heims. Þar skipti sérstaklega miklu máli að íslenskar landsliðskonur komist að hjá félögum sem leika í Meistaradeild Evrópu og Evrópudeildinni. Þórir bendir á að þær íslensku landsliðskonur sem þegar hafi farið út í atvinnumennsku hafi tekið miklum framförum. Afreksstjórinn telur að íslensku félagsliðin gegni mikilvægu hlutverki í þessari þróun. Þau þurfi að búa til gott æfingaumhverfi og undirbúa unga leikmenn fyrir næsta skref á ferlinum. Hann vill að metnaðurinn til að komast í fremstu röð verði eðlilegur hluti af menningu íslensks kvennahandbolta. Þórir telur að með auknum metnaði, markvissari uppbyggingu og fleiri atvinnumönnum geti íslenska kvennalandsliðið tekið stór skref á næstu árum. Ísland hefur tryggt sér þátttöku á fjórða stórmótinu í röð en næsta verkefni landsliðsins er Evrópumótið sem hefst í desember. Þórir Hergeirsson verður með íslenska kvennalandsliðinu á Evrópumótinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.