Þórir sér íslenska kvennalandsliðið í hópi tíu bestu
Kristinn Steinn Traustason

Þórir Hergeirsson, nýráðinn afreksstjóri HSÍ hefur mikla trú á framtíð íslenska kvennalandsliðsins í handbolta og telur að núverandi kynslóð geti haldið saman næstu tíu til fjórtán árin.

Þetta kemur fram í viðtali við Þóri sem birtist á RÚV á dögunum.

Þórir sem stýrði norska kvennalandsliðinu til fjölda stórtitla á löngum þjálfaraferli, telur að Ísland hafi nú á að skipa ungum og efnilegum leikmannahópi sem geti tekið stór skref á næstu árum. Hann segir að með réttri uppbyggingu sé raunhæft að stefna að því að íslenska kvennalandsliðið komist í hóp tíu bestu þjóða heims.

Þórir hefur fylgst náið með yngri landsliðum Íslands og segir að þar sé mikið af efnilegum leikmönnum. Hann telur að núverandi kjarni A-landsliðsins sé á þeim aldri að leikmennirnir eigi mörg ár eftir á hæsta stigi.

„Þetta er ungt A-landslið,“ segir Þórir við RÚV. Hann bendir á að margar landsliðskonurnar séu rétt rúmlega tvítugar og að mikilvægt sé að skapa umhverfi sem geri þeim kleift að þróast áfram og halda sér á hæsta stigi næstu árin. Þórir telur að ef rétt verði haldið á málum geti þessi kynslóð leikið saman næstu tíu til fjórtán árin.

Til þess að Ísland geti skipað sér í hóp tíu bestu þjóða heims telur Þórir nauðsynlegt að fleiri landsliðskonur fari í atvinnumennsku. Hann leggur sérstaka áherslu á að leikmenn komist að hjá félögum sem taka þátt í Meistaradeild Evrópu og Evrópudeildinni.

Þannig fái þær tækifæri til að æfa daglega með sterkum leikmönnum og mæta bestu félagsliðum álfunnar. Hann bendir á að íslensku landsliðskonurnar sem þegar leika erlendis hafi tekið miklum framförum.

Íslenska kvennalandsliðið hefur tryggt sér þátttöku á fjórða stórmótinu í röð en Evrópumótið hefst í desember. Ísland hafnaði í 25. sæti á HM 2023, 16. sæti á EM 2024 og 21. sæti á HM 2025.

Þórir telur að næsta skref sé að komast lengra í keppninni og vinna sig smám saman upp á meðal sterkustu þjóða heims. Hann leggur þó áherslu á að slíkur árangur náist ekki á einni nóttu heldur þurfi markvissa og samfellda vinnu næstu árin.

Þórir verður sjálfur með íslenska kvennalandsliðinu á Evrópumótinu í desember í nýju hlutverki sínu sem afreksstjóri HSÍ.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top