Fjórir leikir voru á dagskránni í kvöld hjá Íslendingaliðunum á Norðurlöndunum en meðal annars mættust Sigurjón Guðmundsson og Tryggvi Garðar Jónsson í Íslendingaslag í Noregi á meðan Elín Klara Þorkelsdóttir átti stórleik þegar efstu liðin mættust í sænsku kvennadeildinni. Við byrjum í Danmörku en þar fengu Horsens skell á útivelli þegar liðið mætti Nykøbing, lokatölur urðu 32-22 fyrir heimakonur. Katrín Tinna Jensdóttir skoraði ekki fyrir gestina að þessu sinni en liðið situr í sjöunda sæti deildarinnar með ellefu stig eftir ellefu leiki. Í Noregi töpuðu Drammen á útivelli gegn Runar með fjórum mörkum, 34-30 en Runar sitja í öðru sæti deildarinnar á meðan Drammen eru áfram í fallbaráttu í neðri hluta deildarinnar. Ísak Steinsson átti erfitt uppdráttar þann tíma sem hann stóð í marki liðsins en hann varði aðeins tvö skot af þeim nítján sem hann fékk á sig eða 11% markvarsla. Sandefjord unnu góðan sigur á Viking á útivelli, 28-31 en Íslendingarnir áttu báðir góðan leik í kvöld. Tryggvi Garðar Jónsson skoraði átta mörk úr tíu skotum og gaf sex stoðsendingar að auki fyrir heimamenn á meðan Sigurjón Guðmundsson varði tólf skot af þeim þrjátíu og tveimur sem hann fékk á sig eða 38% markvarsla. Sandefjord sitja í fimmta sæti deildarinnar á meðan Viking eru í tíunda sæti deildarinnar. Að lokum unnu Sävehof frábæran heimasigur á VästeråsIrsta, 36-27 en gestirnir voru með fullt hús stiga fyrir leik kvöldsins en eftir leikinn eru liðin jöfn að stigum í fyrsta og öðru sæti deildarinnar eftir átta leiki. Elín Klara Þorkelsdóttir var maður leiksins í kvöld en hún skoraði átta mörk úr níu skotum, þar af þrjú úr vítum og gaf fimm stoðsendingar að auki. Úrslit kvöldsins: Nykøbing 32-22 Horsens Runar 34-30 Drammen Viking 28-31 Sandefjord Sävehof 36-27 VästeråsIrsta

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.