Blær Hinriksson og liðsfélagar hans í Leipzig unnu nauman tveggja marka sigur á botnliði Emsdetten, 34-32, í þýsku B-deildinni í handknattleik í gær. Leipzig virtist vera með leikinn í öruggum höndum en gestirnir gerðu harða atlögu að heimamönnum á lokamínútunum. Leipzig byrjaði leikinn af miklum krafti og komst í 3-0 strax á fyrstu tveimur mínútunum. Heimamenn héldu áfram að bæta við forskotið og voru komnir í 5-1 eftir aðeins fjögurra mínútna leik. Emsdetten náði hins vegar að vinna sig aftur inn í leikinn og minnkaði muninn í eitt mark, 8-7, þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður. Leipzig náði aftur tökum á leiknum fyrir leikhlé og fór með fimm marka forskot inn í hálfleikinn, 19-14. Blær Hinriksson skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik og var það einmitt hann sem skoraði síðasta mark hálfleiksins og kom Leipzig í fimm marka forskot. Heimamenn héldu áfram að hafa yfirhöndina í síðari hálfleik og voru enn með fimm marka forskot, 27-22, þegar átján mínútur lifðu leiks. Fátt benti þá til annars en að Leipzig myndi sigla tiltölulega öruggum sigri í höfn. Emsdetten var hins vegar ekki á þeim buxunum að gefast upp og minnkaði muninn jafnt og þétt. Þegar rúmar sex mínútur voru eftir var staðan orðin 30-29 og spennan orðin gríðarleg í höllinni. Leipzig svaraði með tveimur mörkum í röð en gestirnir neituðu að gefast upp og minnkuðu muninn aftur í eitt mark, 32-31. Á ögurstundu steig tékkneski markvörðurinn Tomáš Mrkva upp og varði mikilvægt skot sem hefði getað jafnað leikinn. Staffan Peter kom Leipzig síðan í 33-31 áður en Emsdetten minnkaði muninn enn á ný. Tom Koschek skoraði hins vegar síðasta mark leiksins nokkrum sekúndum fyrir leikslok og tryggði Leipzig 34-32 sigur. Blær Hinriksson skoraði tvö mörk fyrir Leipzig í leiknum. Franz Semper og Luka Rogan voru markahæstir í liði heimamanna með sjö mörk hvor en Staffan Peter bætti við fimm mörkum. Hjá Emsdetten var André Meuser markahæstur með níu mörk. Alls mættu 3.295 áhorfendur á leikinn og meðal þeirra var Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands, sem fylgdist með sínum mönnum í Leipzig. Semper og Peter eru báðir í stórum landsliðshópi Þjóðverja fyrir heimsmeistaramótið í janúar og létu vel að sér kveða á lokakaflanum. Leipzig tapaði boltanum alls 14 sinnum í leiknum og var Frank Carstens, þjálfari liðsins, ekki alls kostar sáttur við frammistöðuna þrátt fyrir sigurinn. Hann hrósaði þó leikmönnum sínum fyrir að standast pressuna á lokamínútunum og tryggja að bæði stigin yrðu eftir í Leipzig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.