Stymmi Klippari, Einar Ingi og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastins og gerðu upp helgina í handboltanum hérlendis og erlendis. Snorri Steinn valdi 35 manna hóp og óvænt nafn var skilið eftir heima. Ómar Ingi meiddist í vikunni og spilar ekki meira á árinu. Staðan a´ Viggó er ekki góð fyrir stórmótið í janúar. Haukar voru í kröppum dansi í Evrópu um helgina. Vinnur Valur Danina aftur? Búið að draga í bikarkeppnina. KA hefndi fyrir tapið fyrr í vetur gegn Þór. Allt eftir bókinni í Olís deild kvenna. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.