Handkastið greindi fyrst allra fjölmiðla frá 35 manna lista Íslands fyrir HM í janúar um helgina. Þar kom í ljós hvaða 35 leikmenn Snorri steinn getur spilað á, á HM. Rætt var um listann í nýjasta þætti Handkastsins þar sem Stymmi klippari spurði Kristin Björgúlfsson hvort einhver nöfn hafi komið honum á óvart á listanum. Þetta eru þeir 35 leikmenn sem koma til greina á HM í janúar ,,Ég get alveg viðurkennt það að ég skil ekki að Ísak Steinsson í Drammen sé í hópnum,” sagði Kristinn Björgúlfsson. ,,Það er ágætt að segja frá því að það mældist á jarðskjálfamælum þegar HK-ingar, Nabblinn og félagar sáu þennan hóp. Fyrst þú ert strax kominn inn á þennan punkt að við tókum þetta saman. Bæði Ísak Steinsson og Sigurjón Guðmundsson eru að spila í norsku úrvalsdeildinni, báðir búnir að spila tíu leiki þar sem Sigurjón Guðmundsson hefur varið 86 skot á meðan Ísak hefur varið 54 skot,” sagði Stymmi klippari. Sigurjón Guðmundsson gekk í raðir Sandefjord eftir að hafa tryggt Kolstad norska meistaratitilinn á síðustu leiktíð. Hann er með 31% markvörslu hjá Sandefjord á meðan Ísak Steinsson er með 27% markvörslu hjá Drammen. ,,Sigurjón hefur staðið sig mjög vel með Sandefjord og það sem er áhugavert er að Sandefjord er í 6.sæti deildarinnar á meðan Drammen er í bullandi veseni í 12.sæti. Ég man ekki eftir því að Drammen hafi verið svona neðarlega síðustu 20 ár,” sagði Kristinn Björgúlfsson.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.