Franski landsliðsmarkvörðurinn Charles Bolzinger er sagður á leið frá Montpellier til Flensburg. Samkvæmt fréttum í frönskum fjölmiðlum hefur orðið vending í viðræðunum eftir að markvörðurinn hefur verið orðaður við þýska félagið í tæpt ár. L’Équipe greindi frá því í fyrra að Flensburg væri í vænlegri stöðu til að fá Bolzinger og að Füchse Berlín hefði einnig sýnt honum áhuga. Bolzinger er 25 ára, uppalinn hjá Montpellier og á samning við félagið til sumarsins 2027. Hann hefur leikið með aðalliðinu frá 2021 og varð franskur bikarmeistari með því bæði 2025 og 2026. Bolzinger hefur unnið til verðlauna á þremur stórmótum með franska landsliðinu. Hann vann silfur á HM 2023, varð Evrópumeistari árið 2024 og vann brons á HM 2025. Hann var einnig í franska hópnum í undankeppni EM 2028 í nóvember.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.