Eyjakonur komnar á toppinn
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Sara Sif Helgadóttir (Eyjólfur Garðarsson)

Haukar tóku á móti ÍBV á Ásvöllum í kvöld og voru það Eyjakonur sem fóru með sigur af hólmi 18-20.

Eyjakonur tóku daginn snemma þar sem þær, þurftu vegna veðurs, að taka Herjólf snemma í morgun en það virtist ekki koma að sök í leik kvöldsins.

ÍBV virtust koma Haukum á óvart með agressívum varnarleik og leiddu þær sanngjarnt í hálfleik 10-13.

Haukar reyndu hvað þær gætu að minnka muninn í seinni hálfleik en þær fór hrikalega illa með dauðafæri í leiknum. Amalia Froland varði mikilvæga bolta fyrir aftan sterka vörn ÍBV.

Sandra Erlingsdóttir var markahæst Eyjakvenna með 7 mörk og Ragnheiður Ragnarsdóttir var markahæst hjá Haukum með 4 mörk.

ÍBV eru því komnar á topp Olís deildarinnar með 8 stig eftir 5.umferðir og eru til alls líklegar í vetur. Haukar sitja í 5.sæti með 5 stig sem verður að teljast vonbrigði hjá þeim.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top