Grill 66 karla: Haukar 2 unnu Hafnarfjarðarslaginn
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ari Dignus Maríuson átti flottan leik (Egill Bjarni Friðjónsson)

Hafnarfjarðarslagur af dýrari gerðinni átti sér stað í 6.umferð Grill 66 deildar karla í dag þegar Haukar 2 og ÍH mættust á Ásvöllum.

Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en undir lok fyrri hálfleiks sigu Haukar 2 fram úr og leiddu með 6 mörkum í hálfleik 19-13.

Haukar 2 héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik og gengu hreinlega frá ÍH mönnum en lokatölur leiksins urðu 34-22 og 12 marka sigur staðreynd.

Ari Dignus Maríuson átti flottan leik í marki Hauka 2 í dag og varði 14 skot.

Daníel Máni Sigurgeirsson, Helgi Marinó Kristófersson og Egill Jónsson skoruðu allir 6 mörk fyrir Hauka 2 en hjá ÍH voru Bjarki Jóhannsson og Ari Valur Atlason markahæstir með 5 mörk.

Haukar 2 eru komnir með 6 stig í Grill 66 deildinni en ÍH eru við botninn með einungis 2 stig eftir 6.umferðir.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top