Aron Pálmars hafði engan áhuga að fara í þjálfun fyrir fimm mánuðum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Aron Pálmarsson FH (Sævar Jónasson)

Það vakti mikla athygli í gærkvöldi þegar FH sendi frá sér tilkynningu þess efnis að Aron Pálmarsson einn allra besti handboltamaður í sögu Íslands væri orðinn nýr aðstoðarþjálfari FH í Olís-deild karla og verður það út tímabilið.

Aron lagði handboltaskóna á hilluna eftir síðustu leiktíð og var í júlí í fyrra ráðinn til starfa sem sérlegur faglegur ráðgjafi handknattleiksdeildar FH.

,,Einar Andri Einarsson mun áfram vera í þjálfarateymi liðsins en mun í auknu mæli taka að sér önnur verkefni hjá handknattleiksdeildinni,” segir í tilkynningunni frá FH.

Það sem vekur mesta athygli að Aron sé kominn inn í þjálfarateymi FH er að hann var spurður að áhuga sínum á því að fara í þjálfun í sjónvarpsþættinum Big Ben á Sýn í byrjun september.

,,Nei, ekki ennþá. Ég hef engan áhuga á því. Það er búið að spyrja mig að því síðan ég var tvítugur. Ég hef ekki áhuga á því. Ég er svo hræddur í að geta ekki gert neitt í hlutunum. Ég hef yfirleitt verið leikstjórnandi og þetta er á mér, hvort sem það er að taka skotið eða setja upp eða eitthvað svoleiðis. En þegar ég er bara dúddi á hliðarlínunni. Vinnan er bara fyrir leik. Ég hugsa að ég gæti það ekki," sagði Aron í Big Ben á Sýn í september á síðasta ári.

Nú hafa hlutirnir hinsvegar breyst og verður Aron á hliðarlínunni þegar FH tekur á móti Selfossi í 18.umferð Olís-deildar karla í kvöld klukkan 19:00 en tveir leikir fara fram í Olís-deildinni í kvöld.

Í Vestamannaeyjum mætast ÍBV og Afturelding klukkan 19:30.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top