Evrópumeistari glímir við brjósklos
Sina Schuldt / dpa Picture-Alliance via AFP)

Danski landsliðsmaðurinn sem varð í byrjun mánaðarins Evrópumeistari með danska landsliðinu eftir sigur á Íslandi í undanúrslitum og svo Þýskalandi í úrslitaleiknum hefur ekkert leikið með félagsliði sínu, Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni eftir Evrópumótið.

Í viðtali við TV 2 Sport sagði Rasmus Lauge að eftir myndatöku sem hann fór í, á dögunum hafi komið í ljós að hann væri að glíma við minniháttar brjósklos sem er ástæðan fyrir því að hann hefur ekkert leikið eftir Evrópumótið.

,,Auðvitað er ég mjög þreyttur á þessu, þetta er mjög pirrandi, en svona er það bara,“ sagði hann við TV 2 Sport og bætti við að enginn tímarammi væri fyrir endurkomu hans en vonaðist til að þetta yrði stutt fjarvera frá vellinum.

Rasmus Lauge verður 35 ára í sumar hefur unnið til sex gullverðlauna með danska landsliðinu á stórmótum en hann er á sínu þriðja tímabili með Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni eftir að hafa spilað með Veszprém, Flensburg og Kiel.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top