Enn einn leikmaðurinn kveður Kolstad
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Magnus Søndenå (Julien Kammerer / DPPI via AFP)

Norski handknattleiksmaðurinn Magnus Søndenå mun yfirgefa norska félagið Kolstad í sumar. Hann hefur ákveðið að ganga til liðs við franska liðið PAUC Aix. Magnus gerir tveggja ára samning við Pauc.

Søndenå bætist þar á lista yfir þá leikmenn sem yfirgefa norska félagið en félagið er í miklum fjárhagsvandræðum. Sænski landsliðsmarkvörðurinn, Andreas Palicka hefur nú þegar yfirgefið félagið og gekk í raðir Wetzlar í Þýskalandi og þá er norski landsliðsmaðurinn, Simen Lyse einnig horfinn á braut og hefur gengið í raðir Paris-Saint Germain.

Arnór Snær Óskarsson yfirgaf Kolstad fyrr á leiktíðinni og kom heim í Val í Olís-deild karla en þrír íslenskir leikmenn leika með félaginu.

Benedikt Gunnar Óskarsson, Sigvaldi Björn Guðjónsson og Sigurjón Guðmundsson eru allir hjá félaginu en Benedikt Gunnar hefur verið orðaður frá félaginu frá og með næsta sumri. Sigvaldi Björn virðist ætla halda áfram hjá félaginu þrátt fyrir að hafa ekki náð samkomulagi við félagið um launalækkun líkt og Andreas Palicka og Simen Lyse sem ákváðu að yfirgefa félagið.

Íslendingurinn, Arnar Freyr Theodórsson er umboðsmaður Magnus Søndenå en Norðmaðurinn gekk í raðir Kolstad sumarið 2024 en hann hefur einungis leikið í Noregi að frátöldu veru sinni hjá Ribe-Esbjerg í þrjú ár frá 2018-2021.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top