Rasmus Lauge (Sina Schuldt / dpa Picture-Alliance via AFP)
Danski landsliðsmaðurinn sem varð í byrjun mánaðarins Evrópumeistari með danska landsliðinu eftir sigur á Íslandi í undanúrslitum og svo Þýskalandi í úrslitaleiknum hefur ekkert leikið með félagsliði sínu, Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni eftir Evrópumótið. Í viðtali við TV 2 Sport sagði Rasmus Lauge að eftir myndatöku sem hann fór í, á dögunum hafi komið í ljós að hann væri að glíma við minniháttar brjósklos sem er ástæðan fyrir því að hann hefur ekkert leikið eftir Evrópumótið. ,,Auðvitað er ég mjög þreyttur á þessu, þetta er mjög pirrandi, en svona er það bara,“ sagði hann við TV 2 Sport og bætti við að enginn tímarammi væri fyrir endurkomu hans en vonaðist til að þetta yrði stutt fjarvera frá vellinum. Rasmus Lauge verður 35 ára í sumar hefur unnið til sex gullverðlauna með danska landsliðinu á stórmótum en hann er á sínu þriðja tímabili með Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni eftir að hafa spilað með Veszprém, Flensburg og Kiel.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.