KA með bestan árangur á heimavelli
{{brizy_dc_image_alt entityId=

KAKA handbolti ((Egill Bjarni Friðjónsson)

KA hafa heldur betur nýtt heimavöllinn sinn vel í vetur því liðið hefur unnið sjö af níu leikjum sínum á heimavelli í Olís-deildinni til þessa auk þess sem liðið vann Fram á heimavelli í 8-liða úrslitum Powerade-bikarsins fyrir jól.

Valur hefur einnig einungis tapað tveimur leikjum á heimavelli í vetur en þeir hafa leikið einum leik færri á heimavelli heldur en KA og því hefur KA hlutfallslega gengið betur á heimavelli en KA.

Þegar fimm umferðir eru eftir af Olís-deildinni hefur KA sótt flest stig allra á heimavelli í vetur eða 14 talsins en alls hefur liðið náð í 22 stig. Liðið hefur einungis tapað tveimur heimaleikjum í vetur. Gegn Haukum í 2.umferðinni 32-33 og gegn Aftureldingu í desember 22-28.

Haukar og Afturelding voru með jafn mörg stig og KA sótt á heimavelli fyrir síðustu umferð en bæði lið töpuðu á heimavelli í síðustu umferð. Haukar gegn ÍBV með einu marki og Afturelding gegn Val 27-35.  Fyrir það hafði Afturelding einungis tapað gegn Selfossi á heimavelli og Haukar gegn Fram í lokaleik sínum fyrir jól og hafa Haukar því nú tapað tveimur heimaleikjum í röð.

Á sama tíma hafa FH og Valur sótt flest stig allra á útivelli í vetur en bæði unnu þau leiki sína í síðustu umferð á útivelli. Valur gegn Aftureldingu eins og fyrr segir og FH fyrir norðan gegn Þór í Höllinni.

18.umferðin í Olís-deild karla hefst í kvöld og lýkur á laugardaginn. Í kvöld fær FH, Selfoss í heimsókn og Afturelding fer til Vestmannaeyja.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top