Markahæstu leikmenn Olís karla eftir 17. umferð
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ágúst Guðmundsson (Sævar Jónasson)

Þriðja umferðin á rúmlega viku hefst í kvöld í Olís-deild karla þegar 18.umferðin verður flautuð af stað með tveimur leikjum. Þrír leikir fara síðan fram annað kvöld og umferðin lýkur síðan á laugardag með stórleik Vals og KA í N1-höllinni.

Aron Pálmarsson mætir á hliðarlínuna í Kaplakrika í kvöld þegar FH fær Selfoss í heimsókn klukkan 19:00 og ÍBV fær Aftureldingu í heimsókn klukkan 19:30.

Athyglisverðasti leikur umferðarinnar fer fram í Kórnum á morgun þegar HK og Þór mætast. HK er í 10.sæti deildarinnar með 10 stig en Þór er í því 11. með 9 stig.

Handkastið hefur tekið saman 10 markahæstu leikmenn Olís-deildarinnar eftir 17 umferðir:

  1. Baldur Fritz Bjarnason (ÍR) - 153 mörk
  2. Bjarni Ófeigur Valdimarsson (KA) - 143 mörk
  3. Hannes Höskuldsson (Selfoss) - 111 mörk
  4. Árni Bragi Eyjólfsson (Afturelding) - 103 mörk
  5. Bernard Kristján Darkoh (ÍR) - 102 mörk
  6. Freyr Aronsson (Haukar) - 98 mörk
  7. Brynjar Hólm Grétarsson (Þór) - 91 mörk
  8. Jökull Blöndal Björnsson (ÍR) - 91 mörk
  9. Símon Michael Guðjónsson (FH) - 90 mörk
  10. Ágúst Guðmundsson (HK) - 86 mörk
  11. Giorgi Dikhaminjia (KA) - 86 mörk

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top