Norðurlöndin: Ísak frábær í marki Drammen
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Jóhannes Berg Andrason ((Egill Bjarni Friðjónsson)

Tvö Íslendingalið voru í eldlínunni í kvöld í norsku og dönsku deildinni en Ísak Steinsson og félagar hans í Drammen unnu góðan útisigur í norsku deildinni gegn Fjellhammer, 24-30.

Ísak átti flottan leik í marki gestanna en hann varði 18 skot af þeim 42 sem hann fékk á sig eða 43% markvarsla. Drammen sitja í fimmta sæti deildarinnar með jafn mörg stig og liðið í fjórða sæti.

Í dönsku deildinni gerðu TTH Holstebro jafntefli á heimavelli í hörkuleik gegn Fredericia, 29-29 urðu lokatölurnar. Jóhannes Berg Andrason skoraði tvö mörk úr þremur skotum fyrir heimamenn.

Úrslit kvöldsins:

Fjellhammer 24-30 Drammen

TTH Holstebro 29-29 Fredericia

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top