Endurkomusigur FH gegn nýliðunum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Garðar Ingi Sindrason (J.L.Long)

FH vann torsóttan endurkomusigur í endurkomu Arons Pálmarssonar í Kaplakrikann þegar nýliðar Selfoss komu í heimsókn í fyrsta leik 18.umferðar Olís-deildar karla.

Selfoss leiddi í hálfleik með þremur mörkum 15-12 og voru yfir allan seinni hálfleikinn þangað til í stöðunni 27-27 en þá komst FH í fyrsta skipti yfir í leiknum í langan tíma. FH-ingarnir voru klókari í lok leiks og þar reyndist Daníel Freyr Andrésson markvörður FH-inga þeim mikilvægur en hann varði nokkur dauðafæri á lokakaflanum.

Lokatölur 33-30 FH-ingum í vil sem gefur enganveginn rétta mynd af því hvernig leikurinn spilaðist. Annan leikinn í röð koðna Selfyssingar á lokakaflanum en þeir komust upp með það í Garðabænum í síðustu umferð en í kvöld var þeim refsað fyrir slakar lokamínútur og FH tóku stigin tvö úr leiknum.

Símon Michael Guðjónsson var markahæstur í liði FH með níu mörk og Garðar Ingi Sindrason kom næstur með sex mörk. Hjá Selfossi var Hannes Höskuldsson markahæstur með níu mörk og Gunnar Kári Bragason skoraði sex mörk á línunni.

Alexander Hrafnkelsson var stórkostlegur í marki Selfoss og varði 21 skot eða 43% markvörslu.

Með sigrinum fer FH í 2.sætið og eru einu stigi á eftir Val sem mætir KA á laugardaginn. Selfoss er áfram í 8.sæti deildarinnar en umferðin heldur áfram annað kvöld og lýkur á laugardaginn.

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top