Andri Erlingsson (Sævar Jónasson)
ÍBV tóku á móti Aftureldingu í 18.umferð Olís deilar karla í Vestmannaeyjum í kvöld. Heimamenn byrjuðu leikinn mun betur en gestirnir úr Mosfellsbæ og voru komnir með fimm marka forskot um miðbik fyrri hálfleiks. Markmenn Mosfellinga voru ekki að finna sig I upphafi leiks meðan Morgan Goði Garner kom inn í markið hjá ÍBV og átti frábæran leik. Staðan þegar liðin gengu inn í búningaherbergja í hálfleik var 19-14 heimamönnum í vil. Það virtist ætla að vera sama upp á teningnum í síðari hálfleik þar sem Eyjamenn héldu í forskotið og bættu frekar í það í upphafi hálfleiks frekar en gestirnir næðu að saxa á það. Afturelding tók við sér undir lok leiksins og voru búnir að minnka muninn í tvö mörk þegar um tíu mínútur voru til leiksleika og var Harri Halldórsson allt í öllu hjá gestunum. Eyjamenn náðu því að standa áhlaupið af sér og unnu að lokum þriggja marka sigur, 32-29. Mosfellingar geta nagað sig í handarbökin að hafa ekki fengið neitt út úr leiknum en þeir fóru mað aragrúa dauðafæra og tækifæra til að gera þetta að leik. Hákon Daði Styrmisson var markahæstur í liði ÍBV í kvöld með 7 mörk en hjá Aftureldingu var Ihor Kopyshynskyi markahæstur með 8 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.