Toppbaráttuslagur Gróttu og HK í Grill 66 deild kvenna framundan
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ída Margrét Stefánsdóttir - wGrótta (Eyjólfur Garðarsson)

Næstkomandi föstudagskvöld, 13. september kl. 19:00 í Hertz höllinni á Seltjarnarnesi verður stærsti leikur ársins í Grill 66 deild kvenna. Toppbaráttuslagur á milli Gróttu og HK. Leikurinn verður gríðarlega þýðingarmikill.

Bæði lið hafa leikið 16 leiki. HK hefur unnið 15 leiki og tapað einum leik. Grótta hefur unnið 13 leiki, gert 2 jafntefli og tapað einum leik.
HK hefur skorað 459 mörk og fengið á sig 350 mörk. Grótta hefur skorað 436 mörk og fengið á sig 349 mörk.

Markahæstar hjá HK eru þær Tinna Ósk Gunnarsdóttir með 81 mörk og Inga Fanney Hauksdóttir með 75 mörk.

Markahæstar hjá Gróttu eru þær Ída Margrét Stefánsdóttir með 112 mörk og Katrín Scheving með 48 mörk.

Liðin hafa mæst tvívegis í vetur. Í fyrra skiptið þann 25. september unnu HK stelpur 21-25 á Seltjarnarnesi. Í seinni leiknum 12. desember unnu Gróttu stelpur 23-25 í Kórnum.

Það er ljóst að þetta verður hörkuleikur á Nesinu á föstudagskvöld og klárt að liðið sem vinnur verður með pálmann í höndunum að fara beint upp í Olís deildina.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top