Hannes Höskuldsson (Sigurður Ástgeirsson)
FH og Selfoss mættust í kvöld í Olís deild karla og endaði leikurinn 33-30 fyrir FH eftir að Selfoss hafi verið með yfirhöndina nánast allan leikinn. Hannes Höskuldsson leikmaður Selfossar fór mikið í sóknarleik liðsins í dag. Hann segir að tilfinningin hafi verið sú að liðið hafi ekki þorað að klára leikinn og segir liðið hafa kastað sigrinum frá sér í kvöld eins og svo oft áður í vetur. Handkastið ræddi við Hannes eftir leik í Kaplakrika í kvöld og má sjá allt viðtalið í spilaranum hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.