Vonast til að koma á gólfið á næstunni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Stefán Magni Hjartarson - Afturelding (Egill Bjarni Friðjónsson)

Stefán Magni Hjartarson hefur ekkert leikið með Aftureldingu í leikjunum tveimur sem liðið hefur spilað í Olís-deild karla eftir áramót. Stefán Magni er að jafna sig á meiðslum sem hann hlaut fyrir áramót.

Afturelding hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum á árinu, fyrst gegn Fram og síðan gegn Val. Liðið er í 3.sæti deildarinnar með 23 stig en liðið fer til Eyja í kvöld og mætir þar ÍBV klukkan 19:30 í 18.umferð Olís-deildarinnar.

,,Ég hef verið að glíma við tognun aftan í báðum lærum. Vinstra lærið fór í leik gegn ÍBV og hægra lærið í leik gegn KA við hopp. Ég er búinn að vinna með sjúkraþjálfara og það allt gengur vel og vonandi sjáið þið mig á gólfinu bráðum," sagði Stefán Magni í samtali við Handkastið.

Stefán Magni hefur einungis leikið 10 leiki með Aftureldingu á tímabilinu og skorað í þeim leikjum 19 mörk en hann hefur verið óheppinn með meiðsli í vetur.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top