Dómari (Egill Bjarni Friðjónsson)
Ægir Örn Sigurgeirsson þjálfari Hauka hlaut útilokun með skýrslu vegna mjög ódrengilegrar hegðunar í leik Vals og Hauka í 3. flokki kvenna á laugardaginn síðastliðinn. Þetta kemur fram á heimasíðu HSÍ eftir fund aganefndar sem fram fór á þriðjudag. Hefur aganefnd HSÍ úrskurðað Ægi Örn í eins leiks bann fyrir hegðun sína en atvikið átti sér stað undir lok fyrri hálfleiks í leiknum. Valur vann leikinn með níu mörkum 30-21 en staðan í hálfleik var 17-7. Ægir var skráður sem þjálfari Hauka í leiknum en aðstoðarþjálfari Hauka er Herbert Ingi Sigfússon starfsmaður á skrifstofu HSÍ. Samkvæmt heimildarmanni Handkastsins sem var á staðnum fékk Ægir rautt spjald í kjölfarið af því að hafa reynt að taka dómaraspjald annars dómara leiksins af honum. Ekki fylgdi sögunni hvað Ægir ætlaði að gera með dómaraspjaldið í kjölfarið en þjálfarar í handbolta hafa yfirleitt lítið að gera með dómaraspjald á sér í miðjum leik eða hvenær sem er, yfirhöfuð. Ægir Örn Sigurgeirsson er sjálfur fyrrum landsdómari og dæmdi lengi vel meistaraflokks leiki á vegum HSÍ í efstu deildum karla og kvenna. Á sama fundi aganefndar var Sara Rún Gísladóttir leikmaður Fram 2 í Grill66-deild kvenna úrskurðuð í eins leiks bann en Róbert Snær Örvarsson leikmaður ÍR í Olís-deild karla slapp við leikbann þrátt fyrir rautt spjald sem hann hlaut í sigri ÍR gegn HK á mánudagskvöldið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.