Enn eitt áfallið fyrir París – Úr leik í bikarnum
ANDRZEJ IWANCZUK / NurPhoto via AFP

Franska stórliðið, Paris Saint-Germain féll úr leik í franska bikarnum eftir tap í kvöld í undanúrslitum keppninnar gegn Montpellier á útivelli. Montpellier hafði betur 39-35 eftir að hafa verið 18-19 undir í hálfleik.

Montpellier eru ríkjandi bikarmeistarar en liðið mætir Nantes í bikarúrslitum í maí. Nantes tryggði sér sæti í úrslitaleiknum fyrr í kvöld með sigri á Nîmes, þar sem leiknum lauk 33–30.

PSG þarf því að bíða enn eitt tímabilið eftir bikarmeistaratitli en félagið hefur ekki orðið bikarmeistari síðan tímabilið 2021/2022.

Spánverjinn, David Balaguer var markahæstur í liði Montpellier í leiknum í kvöld með 13 mörk þar af níu af vítalínunni.

Er þetta enn eitt áfallið fyrir PSG sem féll úr leik í Meistaradeildinni á dögunum eftir tap gegn Vesprém í 1.umferð útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Stefan Madsen sem tók við liðinu fyrir tímabilið hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir frammistöðu Parísar liðsins á tímabilinu og eru margir farnir að efast um að hann stýri liðinu á næstu leiktíð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top