Sjáðu sigurmark ÍBV sem fullkomnaði endurkomuna
Eyjólfur Garðarsson

Það var mikil spenna á loka mínútunum í leik Hauka og ÍBV í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins kvenna á Ásvöllum í dag. Haukar unnu fyrsta leik liðanna í Vestmannaeyjum í einvíginu en vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu.

Kristrún Ósk Hlynsdóttir reyndist hetja ÍBV þegar hún skoraði sigurmark liðsins í leiknum í dag, lokatölur 28-29.

ÍBV JAFNAÐI EINVÍGIÐ EFTIR ÓTRÚLEGA ENDURKOMU

Haukar náðu mest sex marka forystu í seinni hálfleiknum í stöðunni 22-16 og allt benti til þess að Haukar færu með öruggan sigur af hólmi. En þá tók við ótrúlegur kafli Eyjakvenna sem unnu sig hægt og bítandi aftur inn í leikinn.

Rakel Oddný Guðmundsdóttir leikmaður Hauka mistókst hinsvegar að skora úr góðu færi úr vinstra horninu í lokasókn Hauka og það voru því gestirnir í ÍBV sem fengu tækifæri að gera útum leikinn í lokasókn leiksins. Birna Berg Haraldsdóttir fann Kristrúnu Ósk Hlynsdóttur á línunni sem skoraði framhjá Söru Sif Helgadóttur sem hafði átt frábæran leik fyrir Hauka í markinu.

Mark Kristrúnar reyndist sigurmark leiksins en hægt er að sjá sigurmarkið hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top