
Kristrún Ósk Hlynsdóttir reyndist hetja ÍBV þegar liðið vann Hauka á útivelli 28-29 í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins. Haukar unnu fyrsta leikinn í Vestmannaeyjum en ÍBV jafnaði einvígið með sigrinum í dag. Eftir jafnan og spennandi fyrri hluta fyrri hálfleiks átti Haukar betri lokakafla í fyrri hálfleiknum og var þremur mörkum yfir í hálfleik 16-13 eftir að staðan hafi verið jöfn í stöðunni 9-9. Haukar náðu mest sex marka forystu í seinni hálfleiknum í stöðunni 22-16 og allt benti til þess að Haukar færu með öruggan sigur af hólmi. Þjálfarateymi ÍBV ákvað að spila með sjö sóknarmenn en Haukar höfðu tekið Söndru Erlingsdóttur úr umferð nánast allan leikinn. Það virkaði vel fyrir gestina sem unnu sig hægt og bítandi inn í leikinn. Lokamínúturnar voru spennuþrungnar en ÍBV jafnaði metin í næst síðustu sókn sinni í leiknum með marki frá Kristrúnu Hlynsdóttur í vinstra horninu. Rakel Oddný Guðmundsdóttir mistókst hinsvegar að skora úr góðu færi úr vinstra horninu fyrir Hauka í lokasókn Hauka og það voru því gestirnir í ÍBV sem fengu tækifæri að gera útum leikinn í lokasókn leiksins og það gerðu þær þrátt fyrir að spila einungis með sex útileikmenn í sókn. Birna Berg Haraldsdóttir fann Kristrúnu á línunni sem skoraði framhjá Söru Sif Helgadóttur sem hafði átt frábæran leik fyrir Hauka í markinu. Birna Berg Haraldsdóttir var allt í öllu í sóknarleik ÍBV í leiknum og skoraði 16 mörk og skapaði sjö færi, næst kom Sandra Erlingsdóttir með þrjú mörk. Amalia Froland varði 10 skot í marki ÍBV. Embla Steindórsdóttir og Jóhanna Margrét Sigurðardóttir voru markahæstar í liði Hauka með sex mörk hvor en Sara Sif Helgadóttir varði 16 skot í marki Hauka með 35% markvörslu. Liðin mætast í þriðja sinn í Vestmannaeyjum á miðvikudaginn en staðan í einvíginu er jöfn 1-1. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.