Þjálfarabreytingar í Breiðholtinu – Grétar Áki hættur
Sævar Jónasson

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Handkastsins verður Grétar Áki Andersen ekki áfram þjálfari kvennaliðs ÍR eftir eitt ár í starfi í Breiðholtinu sem aðalþjálfari liðsins.

Grétar Áki kom inn í þjálfarateymi ÍR fyrir síðustu leiktíð og var aðstoðarþjálfari Sólveigu Láru Kjærnested. Sólveig Lára hætti með liðið fyrir síðustu leiktíð og tók Grétar Áki við liðinu af Sólveigu.

ÍR-liðið kom mörgum á óvart á tímabilinu en liðið var á toppi Olís-deildar kvenna fyrir áramót þegar deildin fór í pásu vegna heimsmeistaramótsins.

Gengi liðsins eftir heimsmeistaramótið var hinsvegar ekki jafn gott en viðtal við Grétar Áka birtist hér á Handkastinu í morgun þar sem hann fór yfir tímabilið.

TÍMABILIÐ EINKENNDIST AF MIKLUM HÆÐUM OG MIKLUM VONBRIGÐUM

ÍR endaði í 4.sæti Olís-deildar kvenna í vetur með 24 stig sem var besti árangur ÍR í efstu deild. Liðið féll úr leik í 8-liða úrslitum Powerade-bikarsins eftir tap gegn Fram og þá féll liðið úr leik í 6-liða úrslitum úrslitakeppninnar einnig eftir tap gegn Fram 2-0.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top