Haukar tilkynntu nú í morgun að markvörðurinn, Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir hafi gengið í raðir félagsins frá Stjörnunni. Hrafnhildur sem er uppalinn hjá FH gengur þar með í raðir nágranna uppeldisfélags síns. Hrafnhildur kemur til liðs við Hauka frá Stjörnunni þar sem hún hefur leikið undanfarin tvö tímabil. Handkastið greindi frá því í gær að Hrafnhildur væri á leið í Hauka. Á ferlinum hefur þessi 26 ára markvörður leikið með FH, Stjörnunni og Val þar sem hún varð meðal annars Íslandsmeistari. ,,Hrafnhildur mun koma til með að styrkja markvarðarteymi meistaraflokks kvenna þar sem fyrir eru Sara Sif og Erla Rut. Það verður gaman að fylgjast með Hrafnhildi á parketinu á Ásvöllum eftir sumarið og hlökkum við til að sjá hana í Haukatreyjunni," segir í tilkynningunni frá Haukum. Hrafnhildur er annar leikmaður Stjörnunnar sem gengur í raðir Hauka á jafn mörgum dögum því í gær var tilkynnt um að unglingalandsliðskonan, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir hafi gengið í raðir Hauka.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.