PSG tryggði sér franska meistaratitilinn í kvöld þegar þeir unnu Nantes í uppgjöri efstu liða deildarinnar. Nantes byrjaði leikinn betur og voru einu marki yfir í hálfleik, 12-13. Elohim Prandi leikmaður PSG var hins vegar á eldi í síðari hálfleik og var stór þáttur í því að PSG tryggði sér þriggja marka sigur, 34-31 og þar með franska meistaratitilinn þegar tvær umferðir eru eftir af frönsku deildinni. Eins og áður sagði þá var Prandi markahæstur í liði PSG með 9 mörk en hjá Nantes var Noam Leopold markahæstur. Thibaut Briet nýjasti liðsmaður Magdeburg náði ekki að spila með Nantes í kvöld vegna meiðsla og munaði um minna. PSG eru því búnir að vinna franska titilinn 12 sinnum í röð og 13 sinnum frá stofnun félagsins eru nú einungis einum titli frá því að jafna Montpellier.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.