
Sigrún Erla Þórarinsdóttir hefur gengið í raðir Stjörnunnar frá Val. Stjarnan tilkynnti þetta á samfélagsmiðla síðu sinni fyrr í dag en Sigrún er annar leikmaðurinn sem Stjarnan fær til sín frá Val. Fyrr í dag var einnig greint frá því að Erla Sif Leósdóttir hafi gengið í raðir Stjörnunnar frá Val. Sigrún Erla sem er fædd árið 2008 er línumaður og var átta sinnum í leikmannahópi Íslands, deildar og bikarmeistara Vals í vetur og skoraði þrjú mörk. Þá skoraði hún 12 mörk í 15 leikjum með Val 2 í Grill66-deildinni í vetur og varð á dögunum Íslandsmeistari með 3.flokki Vals. ,,Sigrún er mjög öflugur línumaður en einnig hörku varnarmaður sem er mikill kostur. Hún tók þátt í 8 leikjum með Val á síðasta tímabili og skoraði 3 mörk svo hún er búin að fá smjörþefinn af efstu deild en kemur nú til okkar og vonast til að taka næsta skref. Við erum gríðarlega ánægð að fá Sigrúnu til félagsins og hlökkum til að sjá hana spila í bláu treyjunni," segir í tilkynningunni frá Stjörnunni. Sigrún er fimmti leikmaðurinn sem gengur í raðir Stjörnunnar en gera má ráð fyrir mikið breyttu liði Stjörnunnar á næsta tímabili þar sem liðið hefur einnig misst marga leikmenn frá síðasta tímabili.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.