Sýndum okkar rétta andlit í seinni hálfleik
IHF

Íslenska U20 ára landslið kvenna í handknattleik lauk riðlakeppni heimsmeistaramótsins í Kína með sannfærandi 33-23 sigri á Bandaríkjunum í dag. Eftir erfiðan fyrri hálfleik, þar sem Bandaríkin leiddu 15-12 í leikhléi, sneru íslensku stelpurnar taflinu algjörlega við með frábærum varnarleik í síðari hálfleik.

Sigurinn var kærkominn fyrir íslenska liðið sem hafði tapað fyrstu tveimur leikjum sínum á mótinu með tíu marka mun gegn Svartfjallalandi og Tékklandi.

„Þetta var fínn sigur gegn Bandaríkjunum. Fyrri hálfleikurinn var erfiður. Við vorum léleg varnarlega en fínar sóknarlega. Það kom líka smá panik þegar við ætluðum að reyna að skora tvö mörk í einni sókn, en við þurftum bara að stilla okkur aðeins af,“ sagði Halldór Stefán Haraldsson, þjálfari íslenska liðsins, eftir leik.

Ísland sneri taflinu við gegn Bandaríkjunum

Hann sagði íslenska liðið hafa átt í erfiðleikum með einn af lykilleikmönnum bandaríska liðsins.

„Við réðum illa við örvhentu stelpuna í liði Bandaríkjanna sem er virkilega góður leikmaður.“

Í síðari hálfleik breyttist leikurinn hins vegar algjörlega.

„Þá smell vörnin saman og var frábær. Elísabet Millý fór að verja vel og í kjölfarið rúlluðum við yfir þær. Ég held líka að það hafi verið smá pressa á liðinu að þurfa að vinna eftir tvö stór töp. Ég er mjög ánægður með að við náðum að snúa leiknum okkur í vil í seinni hálfleik og sýna okkar rétta andlit.“

Halldór var sérstaklega ánægður með varnarleikinn í seinni hálfleiknum. „Við vorum að mæta þeim ofar með háa bakverði, náðum góðum fríköstum og stálum mikilvægum boltum. Þetta small algjörlega varnarlega í seinni hálfleik og ég held að þær hafi aðeins skorað tvö eða þrjú mörk á fyrstu tuttugu mínútunum, sem er frábært.“

Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir og Dagmar Guðrún Pálsdóttir voru markahæstar í íslenska liðinu með sjö mörk hvor.

Fram undan er frídagur hjá íslenska liðinu áður en milliriðillinn hefst í svokölluðum "Forsetabikar" liða sem ekki komumst uppúr sínum riðli. Ísland mætir Gíneu í fyrsta leik milliriðilsins á mánudagsmorgun klukkan 06:00 að íslenskum tíma.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top