Ísland snéri taflinu við gegn Bandaríkjunum
IHF

Íslenska U21 árs kvennalandsliðið tryggði sér tvö stig inn í Forsetabikarinn á HM með öruggum 33-23 sigri á Bandaríkjunum, eftir að hafa snúið við erfiðri stöðu í síðari hálfleik.

Þar sem bæði lið höfðu misst af sæti í milliriðli skipti leikurinn máli fyrir framhaldið í Forsetabikarnum. Á pappírnum þótti Ísland mun sigurstranglegra, en Bandaríkjamenn komu öllum á óvart í fyrri hálfleik.

Íslenska liðið átti erfitt uppdráttar framan af leik og miðjumaður Bandaríkjanna, Isabella da Cruz, fór fyrir sínu liði með sex mörk í fyrri hálfleik. Bandaríkin léku af miklu sjálfstrausti og fóru með þriggja marka forskot, 15-12, inn í leikhlé.

Í síðari hálfleik sýndi íslenska liðið hins vegar gæði sín og breidd. Ísland hóf hálfleikinn með 6-2 kafla, sneri leiknum sér í vil og náði forystu sem liðið lét aldrei af hendi.

Bandaríska liðið átti í erfiðleikum með að fylgja eftir sterkum fyrri hálfleik og markahæsti leikmaður þess í keppninni, Maggie Doherty Dahllof, skoraði aðeins tvö mörk úr tíu skotum.

Da Cruz hélt áfram að vera öflug og lauk leik með átta mörk, en hjá Íslandi fóru Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir og Dagmar Guðrún Pálsdóttir fyrir sóknarleiknum með sjö mörk hvor.

Elísabet Millý Elíasardóttir, markmaður Íslands, var valin besti leikmaður leiksins.

Með sigrinum tekur Ísland tvö stig með sér inn í Forsetabikarinn og heldur áfram keppni þar eftir sterka endurkomu gegn Bandaríkjunum.

Markaskorarar Íslands í leiknum í dag: Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 7, Dagmar Guðrún Pálsdóttir 7, Guðrún Hekla Traustadóttir 5, Arna Karítas Eiríksdóttir 4, Birna María Unnarsdóttir 4, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 3, Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir 2, Sara Lind Fróðadóttir 1.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top