Vinstri hornamaður, íslenska landsliðsins Stiven Tobar Valencia hefur samkvæmt heimildum Handkastsins samið við þýska úrvalsdeildarliðið HC Erlangen fyrir tímabilið 2027/2028. Það sem gerir stöðu Stivens hinsvegar erfiða er sú staðreynd að hann er samningslaus í dag og er enn án félags og ný kominn úr axlaraðgerð. Hann er því enn að leit að liði fyrir næstu leiktíð og hefur það reynst þrautin þyngri þar sem hann er einungis að leita sér að liði fyrir eitt tímabil. Stiven hefur undanfarin þrjú tímabil leikið með portúgalska félaginu Benfica en samningur hans rann út um síðustu mánaðarmót. Hefur Stiven verið orðaður við heimkomu í Val en Valur leikur í Evrópudeildinni á næstu leiktíð. Er íslenskur landsliðsmaður á heimleið? Stiven, sem er uppalinn hjá Val yfirgaf Hlíðarenda sumarið 2023 þegar hann samdi við portúgalska stórliðið Benfica. Stiven lék með íslenska landsliðinu á Evrópumótinu í Þýskalandi árið 2024 og var kallaður inn í íslenska hópinn á heimsmeistaramótinu 2025 þegar Bjarki Már Elísson meiddist. Stiven gekkst nýverið undir aðgerð á öxl og er því í endurhæfingu, en óvíst er hvenær hann verður tilbúinn til keppni á ný. Samkvæmt heimildum Handkastsins er samtalið milli Vals og Stivens virkt en Valur hefur fengið vinstri hornamanninn, Bessa Teitsson frá Gróttu en Bessi er einn efnilegasti vinstri hornamaður landsins og er þessa dagana í eldlínunni með íslenska U20 ára landsliðinu á Evrópumótinu. Þá er Valur einnig með Daníel Guðmundsson og Andra Finnsson.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.