Stiven Tobar Valencia gæti verið á leið aftur til uppeldisfélags síns Vals en samkvæmt heimildum eru Íslands- og deildarmeistararnir að skoða möguleikann á að fá landsliðsmanninn í sínar raðir fyrir komandi tímabil. Stiven, sem er uppalinn hjá Val yfirgaf Hlíðarenda sumarið 2023 þegar hann samdi við portúgalska stórliðið Benfica. Hann hefur því leikið með Benfica undanfarin þrjú tímabil en samningur hans við félagið er nú runninn út og er hann samningslaus. Stiven lék með íslenska landsliðinu á Evrópumótinu í Þýskalandi árið 2024 og var kallaður inn í íslenska hópinn á heimsmeistaramótinu 2025 þegar Bjarki Már Elísson meiddist. Stiven gekkst nýverið undir aðgerð á öxl og er því í endurhæfingu, en óvíst er hvenær hann verður tilbúinn til keppni á ný. Samkvæmt heimildum Handkastsins er samtalið milli Vals og Stivens virkt en Valur hefur fengið vinstri hornamanninn, Bessa Teitsson frá Gróttu en Bessi er einn efnilegasti vinstri hornamaður landsins og er þessa dagana að undirbúa sig fyrir Evrópumót U20 ára sem hefst um miðjan júlí. Stiven sló í gegn með Val áður en hann hélt út í atvinnumennsku og var einn af lykilmönnum liðsins á síðustu árum sínum hjá félaginu. Hann á meðal annars stóran þátt í Íslandsmeistaratitlum Vals og var valinn verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar árið 2022.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.