Opna Norðlenska fer fram dagana 12.–15. ágúst
Egill Bjarni Friðjónsson

Dagana 12.–15. ágúst fer hið árlega Opna Norðlenska fram í KA-heimilinu á Akureyri. Í karlaflokki taka KA, Þór og ÍR þátt í mótinu, en í kvennaflokki verða það KA/Þór, ÍR og Afturelding sem mætast.

Karlalið ÍR leikur í Grill66-deildinni á næstu leiktíð og kvennalið Aftureldingar einnig. Annars leika hin þrjú félögin í Olís-deildinni á næstu leiktíð.

Mótið hefst miðvikudaginn 12. ágúst þegar KA og Þór eigast við í Akureyrarslag sem hefst klukkan 19:00. Á fimmtudeginum mætast KA/Þór og Afturelding í fyrsta leik kvenna megin.

Tveir leikir verða síðan á dagskrá föstudaginn 14. ágúst. Klukkan 18:00 mætast KA/Þór og ÍR í kvennaflokki áður en Þór og ÍR eigast við í karlaflokki klukkan 20:00.

Mótinu lýkur laugardaginn 15. ágúst með tveimur leikjum. KA og ÍR mætast í karlaflokki klukkan 11:30 og í lokaleik mótsins eigast ÍR og Afturelding við í kvennaflokki klukkan 13:30.

Dagskrá Opna Norðlenska

Miðvikudagur 12. ágúst

  • 19:00 – KA – Þór (karlar)

Fimmtudagur 13. ágúst

  • 19:30 – KA/Þór – Afturelding (konur)

Föstudagur 14. ágúst

  • 18:00 – KA/Þór – ÍR (konur)
  • 20:00 – Þór – ÍR (karlar)

Laugardagur 15. ágúst

  • 11:30 – KA – ÍR (karlar)
  • 13:30 – ÍR – Afturelding (konur)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top