Unglingalandsliðsmaður framlengir við Fram
Fram

Alex Unnar Hallgrímsson hefur framlengt samning sinn við Fram til næstu tveggja leiktímabila.

Alex Unnar eða Kexi eins og hann er kallaður er bráðefnilegur vinstri hornamaður og hefur hann verið máttarstólpi í 3.flokki og Fram 2 í Grill66-deildinni. Alex Unnar er þessa dagana í verkefni með U18 ára landsliði Íslands sem undirbýr sig fyrir Evrópumótið sem hefst í næstu viku.

Alex Unnar lék líka sína fyrstu leiki í Olísdeildinni og Evrópudeildinni á síðustu leiktíð.

,,Kexi er mikill íþróttamaður, ekki bara öskufljótur, heldur með gífurlega mikinn sprengikraft sem hann hefur bæði frá náttúrunnar hendi sem og að hann er gífurlega duglegur í lyftingarsalnum, sem skilar sér heldur betur inn á völlinn. Við hlökkum mikið til að sjá Kexa halda áfram að þróa sinn leik hjá okkur og erum mjög spennt að sjá hann stimpla sig inn hjá okkur í Olísdeildinni," segir í tilkynningunni frá Fram.

Alex Unnar er yngri bróðir Viktors Gísla Hallgrímssonar leikmanns Barcelona og íslenska landsliðsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top