Í síðustu viku var dregið í riðlakeppni Evrópudeildar karla fyrir keppnistímabilið 2026/27. Tvö íslensk lið voru í pottinum, Íslandsmeistarar Vals og FH, ásamt fjölda sterkra evrópskra félaga þar sem margir íslenskir leikmenn leika. Óhætt er að segja að bæði Valur og FH hafi fengið riðla þar sem raunhæfir möguleikar eru á að berjast um efstu tvö sætin, sem veita þátttökurétt áfram í keppninni. Á sama tíma verður þó vart talað um draumadrátt fyrir íslensku félögin, enda fékk hvorugt þeirra stórt lið á evrópskan mælikvarða sem gæti dregið að áhorfendur á heimaleiki. FH leikur í B-riðli og mætir þar spænska liðinu Bidasoa Irun, franska liðinu Limoges Handball og portúgalska liðinu Marítimo frá Madeira. Líkt og hjá Val virðist um opinn og jafnan riðil að ræða þar sem FH getur vel blandað sér í baráttuna um áframhaldandi þátttöku í keppninni. Aron Pálmarsson, nýr þjálfari FH, ræddi dráttinn við Handkastið og kveðst nokkuð sáttur við niðurstöðuna. „Ég er nokkuð ánægður með þennan drátt og þetta eru flott lið sem við mætum í riðlinum en ég get alveg viðurkennt það að ég þekki lítið til portúgalska liðsins en það verður gaman að kynnast þeim. Bidasoa er sögufrægt lið og Limoges er fínt lið.“ Aron viðurkennir þó að hann hafi vonast eftir því að fá þýska liðið Gummersbach í Kaplakrika, meðal annars vegna tengingarinnar við félagið. Garðar Ingi Sindrason gekk í raðir Gummersbach frá FH í sumar og þá leika Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson með liðinu sem stýrt er af Guðjóni Val Sigurðssyni. „Við vorum að sjálfsögðu að vonast eftir því að fá Gummersbach í Kaplakrikann, út af tengingunni en annars er lítið hægt að segja um þetta annað en ég er sáttur með þennan riðil,“ sagði Aron Pálmarsson.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.